Lækker

Velkomin í dagbók Váníu og Stínu næstu fjóra mánuði:) Við erum staddar í lýðháskóla í Danmörku sem heitir Brandbjerg og er í Jelling. Og við munum vera í Danmörku til 20 desember, án kærastanna okkar:( kiss kiss strákar..

Sunday, December 18, 2005

Skólinn búin ;(


Vánía: jæja, skólinn bara búin og leiksýningarnar líka. Sýningarnar tókust mjög vel og við brileruðum geðveikt. Vá hvað þetta er skrítið engin skóli, við erum bara að kaupa jólagjafir og skoða okkur um í köben. Við fórum í tívolið í dag og það var geðveikt falleg ljósadýrð, förum svo heim eftir 2 daga. Vá eftir TVO daga, vá hvað þetta er fljótt að líða. En þetta er búið að vera geðveikt skemmtilegt og æðisleg lífsreinsla. En svo er Vánía snilingur búin að skemma fótinn og er ekki alveg viss hvernig. Þannig hún er haltrandi um eins og mörgæs ekki fallegt. Takk fyrir þessa 4 mánuði elskurnar, þetta er búið að vera svaka stuð. Ég kveð því núna, bless bless elskurnar.

Wednesday, December 14, 2005

10 dagar til jóla ;)


Vánía: Tíu dagar til jóla. Vá, segi ég bara. Jæja, fyrsta sýning á morgun smá spenna í gangi og ég veit ekki hvernig þetta fer allt saman. Vonum bara það besta, hver ætlar að hugsa jákvætt til mín kl 8 dönskumtíma. Ég SAGÐI HVER. Ég, Vánía ég ..... Takk fyrir ég ætlaði að segja að engin væri að hlusta.....ó þetta er bara ég.....he hehhe. En nóg um það ég er búin að pakka flestu niður og á bara eftir að ná tali af Stínu til að bóka lestarmiðana til köben. Þá er bara standa sig vel á morgun og hinn, þá er þetta allt bara búið. Ég minn eini fjórir mánuðir bara næstum liðnir strax.
Þetta er búið að vera svo skemmtilegt, að ég tými næstum ekki að fara frá þessu öllu. En við getum sagt sem svo að ég hafi eignast 65 nýja vini, sem er alveg frábært. En nú er best að koma sér í háttinn, langur dagur á morgun. Bless, bless.

Sunday, December 11, 2005

Sorry elskurnar :(





Vánía: Jæja, sorry elskurnar við erum ekkert svo góðir bloggarar. Hvað erum við búin að vera að gera? Hum ha. Já, við erum búin að vera alveg á fullu í skólanum. Svo erum við búin að hafa hinar og þessar Háskóla helgar eins og grín helgi og Horror helgi. Sem voru alveg æðislegar og við skemmtum okkur snilldarlega. Síðan er ég og musikal liðið erum búin að vera semja og setja upp leikritið okkar, sem verður frumsýnd fimmtudaginn 15. des. Alls verða sýningarnar 3 og loka sýningin verður svo föstudaginn 16. des. næst komandi. Þannig vika to go, smá stress í gangi en þetta verður mjög fínt. En núna er er skólinn bara að verða búin, Stína sæta er að fara sækja Guggu(mömmu sína fyrir þá sem vita það ekki) á flugvöllinn á morgun, svo halda þær til Svíþjóðar. En koma svo á föstudaginn að sjá leikritið. Ég verð því alein
heima alla vikuna, partý ha ha. Og kannski smá tiltekt, hí hí ;) .
En við sjáumst seinna elskurnar kiss kiss.

Wednesday, November 23, 2005

Malmö

Vánía: jæja, tími til komið að blogga smá. Þetta er bara allt að verða búið núna, skólin það er sem frekar sorglegt en frekar gott. Það eru allir ornir frekar þreytir og kvíða því að skólinn er búinn. Sérstaklega þau sem koma eftir ára mót, held ég. Því þá verða næstum allir, ef ekki allir kennararnir farnir. Sem er ömurlegt því við erum öll eins og mjög stór fjölskyda. En um síðustu helgi fórum við Stína til Malmö í Svíþjóð, sem er frekar sætur staður. Við komum þangað á Laugardeiginum, byrjuðum á að skoða okkur aðeins um og smá verslað, sumir meira en aðrir ;)
Seinni partinn ákváðum við svo að finna okkur hótel áður en færri að dimma. Fyrsti staðurinn sem við fórum á hét ,,Hótel Formúla 1'', en hann var fullbókaður, q;( . Þannig að við ákváðum að prófa, Bosses gæsthouse. Við erum mjög gáfaðar og tókum strætó sem átti að stopa alveg við gesthúið. En við sem erum svo gáfaðar að fórum framhjá stöðinni, við þurftum því að hlaupa til baka. Við fundum svo götuna en fundum ekki húsið, við hlupum því fram og til baka nokkrum sinnum og fórum framhjá húsinu nokkrum sinum. Flott stelpur! En á endanum fundum við staðinn eftir næstum 3 tíma hlaup. En þetta var mjög hollt. Þetta var mjög kosy gistihús og frekar ódýrt. Og var við endan á verslunargötunni. Á sunnudeiginum fórum við svo á helstu túristastaðina og tókum fullt af myndum.Svo skelltum við okkur í bíó um kvöldið. Á mánudeginum fluttum við svo út úr gesthúsinu og fórum svo að versla , skoða okkur og kveðja bæinn. Jæja nú segi ég bara bless og ekkert snakk.

Thursday, November 10, 2005

hallo hallo, ég er á lífi.........


Stína: Hvar skildi ég nú við ykkur hmmm...........já um þarseinustu helgi var þemahelgi og var þemað gömlu grísku ólympíuleikarnir. Það voru semsagt allir með hvíta lakið vafið utan um sig og greinar í hárinu:) Þetta var nú soldið eins og það væri búið að leggja mann inn á klepp;) En það var samt geðveikt gaman og byrjaði laugardagsmorguninn á bogruppuólimpíuleikum. Það voru allar bogruppurnar látnar koma frá einhverju landi og var okkar frá Grænlandi. Allir héldu á fána til að stiðja sitt land og svo var hlaupið stóran hring. Að lokum var svo kyndill látinn ganga á milli okkar sem endaði með því að að morten hljóp síðan og kveikti eldinn. Eftir þetta var svo förinni heitið á fótboltavöllinn þar sem farið var í fjölmarga eggjaleiki. Síðan var farið í leikfimishúsið í leiki og endað í garðinn þar sem farið var í reipitog, bundið fyrir augun þrautaleik og sápuglímu. Þar sem ég rokkaði feitt;) rústaði öllum gellunum hahahah.Eftir allar þrautirnar var bikarinn afhentur og var það bogruppa 6 sem vann við urðum í 2 sæti damn...Um kvöldið var síðan borðaður góður matur með grikkjunum og drukkið vín. Verð samt að segja að kennararnir slóu allt út og komu í geðveikum búningum( Bente, Christian, Claus og Mette). Bente sem er frekar nett og svona 160 á hæð hélt í band sem var bundið utan um hálsinn á hinum þremur og voru þau svo öll í svona strigapokum. Það fyndna var svo að í hvert sinn sem þaug stóðu upp til að fá sér á diskinn þá þurftu þau öll að fara saman og hún dróg þau á eftir sér:) Deginum eftir var svo bara skellt sér til Vejle og farið í sund. Í vikunni á undan komu svo nýju nemendurnir sem voru um 18 og þar á meðal 5 ísl og 1 færeyingur. Ég fékk tvo nýja í mína bogruppu hana Hildigunni og Loga sem Claus ákvað að kalla goldfish og logn:) Já svo þurftum við líka að velja ný fög, ég valdi maleri, sundhedsphysologi, tegning, blak og dans.Í vikunni eftir grísku helgina á miðvikudeginu kom svo hann Ómar minn jibbí. Það var ótrúlega gaman að fá þig í heimsókn ástin mín kiss kiss. Ég sýndi honum skólann og svo kíktum við á kaffikinnhest um kvöldið. Deginum eftir kom hann svo með mér í teikningu og svo var skellt sér til Vejle. Á föstudeginum kom hann svo með mér í blak og breakdans þar sem hann brilleraði:)
Helginni var svo eitt í Arhus sem er ekkert smá falleg, við fengum lánaða íbúð hjá vinafólki hans það var æði. Við kúrðum svo bara alla helgina, löbbuðum um, og fórum út að borða það var æðislegt.
Svo vorum við svo heppinn á föstudeginum að vera í Danmörku þegar jólabjórinn var að koma á barina. Því á slaginu 20:59 þá var spilað jólalag og allir flykktust á barinn, mér leið eins og það væri vika í jólin:)Takk fyrir helgina ástin mín stór koss, sakna þín.
Á þriðjudeginum var svo kaffihúsakvöld sem var ekkert svo spes og á miðvikudeginum var kaffikinnhestur opin. Sammenspil spilaði fyrir okkur nokkur lög og síðan var aðeins tjúttað, skemmti mér bara nokkuð vel EDRÚ með diet coke í hendinni;)
Jæja næst á döfinni, um helgina verður þemað grín og fáið þið að heyra allt um það seinna,

bæjó

Wednesday, November 09, 2005

Breytingar

Vánía: Jæja, þetta er búinn að vera frekar róleg vika. Ég flutti reindar út í síðustu viku því hann Ómar kom í heimsókn. Þannig ég fór upp til Anju í nokkra daga. Það var fín tilbreyting. En svo á föstudeginum kom ég heim aftur og tók til. Svo leidist mér að taka bara til , svo ég breyti
til. Ég færði rúminn til og færði skrifborðið. Svo það er rosa fínt hérna núna. Á laugardeginum fór ég til Billka sem er risa stór búð. Þangað verð ég að fara aftur og kaupa jóla gjafir. Svo um kvöldið var Tómas vinur Martins að syngja og spilla á gítar. Hann stóð sig mjög vel og hann er með ekkert smá sexy og rifna rödd. ;) Svo var missþyrmt fótleggnum hans Martin, með rakvél. Svo greyi maðurinn er með sár upp eftir leggnum og allveg hárlaus. Ekki fallegt.

En nú kveð ég að sinni svo bæ bæ

Saturday, November 05, 2005

Spurning

Vánía: Ef ég væri sveppur væri ég eitruð- eða ofskynjunarsveppur, eða kannski bara venjulegur sveppur? Og ef svo væri myndi einhver borða mig eða reykja mig? Endilega svarið þessari spurningu fyrir mig. Takk elskurnar. Hæ,Hæ. Við heyrumst seinna.